Lýsing
Kanínan er prjónuð úr brúnu, yrjóttu og hvítu garni. Hún er í útprjónuðum, bláum og hvítum kjól. Hún er í bláum skóm og sokkabuxum. Það er hægt að klæða hana úr peysu og kjól, en sokkabuxur og skór eru hluti af búknum. Hún er með ísaumuð augu og hentar því börnum á öllum aldri. Athugið þó, að það er tala á peysunni.
Garnið í kanínunni er blanda af ull, viskós og akríl en fötin eru prjónuð úr akríl garni. Fylling er úr 100% endurunnu polyester.
Þvottaleiðbeiningar: Má þvo í þvottavél á 30° – Má setja í þurkara á lágum hita
Ráðleggingar fyrir þvott: Takið hana úr fötunum fyrir þvott




Umsagnir
Það eru engar umsagnir um þessa vöru ennþá.