Þjónustuskilmálar

Vefrún ehf. er verslun sem selur handverk, hágæða textilvörur og fylgihluti fyrir bútasaum.

Vefrún ehf. 
Kt. 500725-0520

 Akurgerði 12
190 Vogum
s. 864-0915
vefrun@vefrun.is

7

Skilmálar – Á við um vörukaup í vefverslun Vefrúnar ehf

Til að stunda viðskipti í vefverslun þarf að framkvæma eftirfarandi skref:

  1.  Velja vöru og setja í körfu
  2. Velja „Ganga frá pöntun“ og fylla út allar nauðsynlegar upplýsingar um viðskiptavin
  3. Velja viðeigandi sendingar- og greiðslumáta
  4. Ganga frá greiðslu

Þegar greiðsla hefur borist Vefrúnu ehf. fær viðskiptavinur tölvupóst með upplýsingum um viðskiptin.

Verð á sendingum reiknast skv. verðskrá Dropp eða Íslandspósts og kemur fram í greiðsluferlinu. 

Hefðbundinn afhendingartími eru 1-3 virkir dagar frá því að pöntun er gerð.  

Hægt er að velja að sækja vörur í verslun. Viðskiptavinir fá senda staðfestingu í tölvupósti þegar varan er tilbúin til afhendingar. 

Afhendingartími getur verið breytilegur eftir því hvaða sendingarmáti er valinn. Á álagstímum getur afhendingartími orðið lengri en almennt má búast við.

Vefrún ehf. kaupir sendingarþjónustu af þriðja aðila og ber ekki ábyrgð á töfum sem koma upp eftir að pöntun hefur verið afhent sendingaraðila.

Pantanir sendar með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnarVefrún ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. 

Skilareglur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að vörur séu ónotaðar og þeim skilað í upprunalegu ástandi ásamt kassakvittun eða skilamiða. Fresturinn miðast við að vara sé komin aftur í hendur seljanda innan 14 daga.

Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að seljandi hefur móttekið vöruna.

Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gjafakortum, metravöru og sérpöntuðum vörum er ekki hægt að skila nema um framleiðslugalla sé að ræða.

Vörum sem keyptar eru á útsölu eða lagersölu fæst hvorki skilað né skipt enda eru þær seldar í því ástandi sem þær eru hverju sinni. 

Gallaðar vörur

Við afhendingu á vöru ber kaupendum að rannsaka vöru á þann hátt sem góð venja stendur til. Þegar 6 mánuðir eru liðnir frá móttöku vöru verður ekki hægt að skila gölluðum vörum enda á framleiðslugalli að vera kominn fram á þeim tíma. Framvísa þarf reikningi til staðfestingar að vara hafi verið keypt hjá Vefrúnu ehf. Senda þarf lýsingu og mynd af vöru ásamt staðfestingu á greiðslu á vefrun@vefrun.is.

Öllum skilaboðum er svarað innan 7 virkra daga.

Afhending

Allar pantanir eru sendar með Dropp eða Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar valins flutningsaðila um afhendingu vörunnar.

Sendingarkostnaður innanlands er í samræmi við verðskrá Íslandspósts og Dropp.

Sendingarkostnaður er reiknaður í greiðsluferli og miðaður við skráð heimilisfang móttakanda.

Það tekur 2-3 virka daga fyrir vörur að berast innanlands. Pantanir eru póstlagðar samdægurs eða næsta virka dag, að því tilskildu að þær séu til á lager.

Hægt er að velja að sækja vörur í verslun. Viðskiptavinir fá senda staðfestingu í tölvupósti þegar varan er tilbúin til afhendingar. 

Hægt er að láta senda pantanir á annað heimilisfang en kaupanda, er hægt að velja um það í greiðsluferlinu.

7

Verð, skattar og gjöld

Öll verð í netverslunni eru í íslenskum krónum með virðisaukaskatti. Virðisaukaskattur er 24% á almennum vörum.

Vinsamlegast athugið að verð í netversluninni geta breyst án fyrirvara. 

Vefrún ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Í einstaka tilfellum getur vara klárast á milli þess sem pöntun er gerð og þar til hún er tekin saman, eða þá að birgðastaða er röng sem gerir viðskiptavin kleift að versla vöru sem ekki er til.

Í þeim tilfellum mun Vefrún ehf hafa samband við viðkomandi viðskiptavin símleiðis eða í tölvupósti og aðstoða hann við val á annarri vöru, eða endurgreiða honum vöruna til fulls.

Greiðsluform

Netverslunin samþykkir öll helstu greiðslukort.

Athugið að greiðslur fara allar í gegnum örugga greiðslusíðu MyPos  á Íslandi.

Auk þess er hægt að leggja inn á reikning Vefrúnar ehf.

Bankaupplýsingar: 0517-26-000913 kt. 500725-0520.

Inneignarnótur og gjafabréf

Inneignarnótur og gjafabréf gilda ekki á útsölu né lagersölu.

Vörur

Við leggjum okkur fram um að sýna allar vörur okkar í réttum litum. Það er hins vegar útilokað að ábyrgjast alveg rétt litbrigði eins og þau birtast á þínum tölvuskjá vegna þess að vefmyndir búa við ákveðnar tæknilegar takmarkanir.

Við leggjum okkur fram um að sýna allar vörur okkar í réttum litum. Það er hins vegar útilokað að ábyrgjast alveg rétt litbrigði eins og þau birtast á þínum tölvuskjá vegna þess að vefmyndir búa við ákveðnar tæknilegar takmarkanir.

Trúnaður og persónuupplýsingar

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Um vörukaup gilda lög um neytendakaup nr. 48/2003og lög um lausafjárkaup nr. 50/2000.

Vafrakökur (Cookies)

Þessi vefsíða notar vafrakökur til að tryggja sem besta upplifun fyrir notendur. Þú getur samþykkt þær allar eða valið úr í stillingum. 

 

  • Tæknikökur: Þessar kökur verður þú að hafa til þess að vefsíðan virki sem best. Ekki er hægt að slökkva á þessum kökum.
  • Tölfræðikökur: Til þess að bæta virkni á síðunni okkar þá er mjög gott að leyfa þessar kökur. Valkvætt
  • Upplifunarkökur: Til þess að bæta upplifun gesta okkar á síðunni væri frábært ef þú samþykkir hér. Valkvætt
  • Markaðskökur: Ef þú deilir með okkur ferðalagi þínu um síðuna þá gæti verið að þú fáir að vita af skemmtilegum tilboðum og nýjum vörum sem henta þér! Valkvætt

Aðrar upplýsingar

Aðrar upplýsingar

Ef þú hefur fleiri spurningar, ekki hika við að hafa samband við okkur.

7