Gaman gaman!

Já, nú er ég aldeilis komin með nýtt dót! Það var fyrir nokkru síðan sem ég sá auglýsingu á Fésbók, þar sem kona ein var að auglýsa draumadótið mitt. Ég kannaðist aðeins við konuna, eða a.m.k. ættina, en hún er nú bara frænka eiginmannsins míns. Ég var búin að vera að skoða þann möguleika að fá manninn minn til að smíða mér einhverskonar svipaða græju en þar sem quilt topparnir hafa hlaðist upp. Eiginmaðurinn hefur reyndar alveg nóg á sinni könnu og ég hefði örugglega átt fjall af toppum áður en heimasmíðuð græja hefði litið dagsins ljós. Því var bara ákveðið að fjárfesta í henni tilbúinni til notkunar og …. ég held svei mér þá…. hún virkar! Svo fylgdi henni líka saumavél sem er algjör vinnu hestur og hún gerir margt sem mín ljómandi fína Pfaff á í vandræðum með….
Það skal tekið fram að það þarf að æfa sig í þessu…. Ég hef aðeins prófað að gera þetta án ramma…. bara svona á saumavélinninni…. þó með tilheyrandi aukadóti… en þetta er „ögn“ miklu meira kúl!
Fyrir þá sem eru ekki í bútasaumi, þá er þetta græja til að „quilta“… þ.e.a.s. að festa saman lögin þrjú sem gera teppið, topp (þetta sem ég hef verið að sauma), millilag og bakstykki…. Í þetta „samsaum“ má svo gera allskonar mynstur og dúllerí.
Nú vantar mig eiginlega bara efnivið til að nota í æfingarnar…. því óska ég eftir gömlum lökum, sængurverum, dúkum eða öllu því efni sem teygist ekki mikið. Flísteppi eru líka á listanum. Þetta má alveg vera blettótt, götótt og slitið og/eða forljótt. Ég get klippt það niður og saumað saman í „gerfi teppi“…..
Æfingar gærdagsins í myndum
Dagurinn í dag
Þetta eru svo lítill bútur af æfingum dagsins – og Stundarglasateppið sem ég skrifaði um um daginn…. er komið á ramman…… framhald af því í næstu færslu….













0 Comments