„Málað“ með tvinna

26. júlí, 2024
Vefrún bloggar

Um eftirmiðdag í gær ákvað ég að spreyta mig í því sem á enskunni kallast Thread painting.  Samkvæmt YouTube myndbandi sem ég vafraði á um daginn þá er þetta nefnilega ágætis æfing í því að nota „Free-motion“ tæknina en það er einmitt það sem ég er að æfa mig í undanfarið.

Ég byrjaði á því að vafra um netið í leit að myndum sem myndu henta í þetta og sem mér fannst fallegar…..  Á Pinterest fann ég þessa.  Hún var þó alltof lítil þannig að ég opnaði bara Word og stækkaði hana bara.  Þegar maður gerir það vilja gæðin fara út í veður og vind en í þessu tilfelli er það bara allt í lagi þar sem mig vantaði bara útlínurnar.

Nú var að koma myndinni yfir á eitthvert form sem ég gæti nýtt í saumavélina.  Ég var ekki til í að sauma beint á pappírinn, en ég hef séð myndbönd þar sem fólk gerir það.  Ég átti til vatnsleysanlega filmu sem ég ákvað að nota og þar sem þessi filma er glær lagði ég hana bara yfir blaðið með myndinni.  Ég límdi blaðið og filmuna á borðið með málningarlímbandi og fór ofaní hverja línu með Sharpie.

Ég ákvað að bæta smávegis í bakgrunninn og klippti því út nokkur form og lagði á bakgrunnsefnið en undir filmuna. Ég setti líka tear-away stabilizer undir og festi svo allt lottið í útsaumshring sem ég átti til ofan í skúffu…..   Littli sæti Open-Toe Sensor Matic Free-Motion fóturinn minn var sóttur…. og þá var bara að byrja að sauma…..

Ég byrjaði á að fara yfir allar línur á filmunni með free-motion beinum saum og svörtum tvinna og raðaði svo litum og sporum í myndina þar sem mér fannst þetta eiga að vera.

 

Það eru lítil sem engin vísindi á bakvið þetta.  Ég notaði bæði beinan saum og zik-zak (mismunandi á breiddina) og „málaði“ og „málaði“.  Það sem ég fann út var m.a. (Í random röð):

  1. Það getur verið gott að byrja með ljósan tvinna og dekkja svo
  2. Þú þarft ekki að hafa sama lit sem undirtvinna og stundum má dökkur undirtvinni sjást með ljósum efri tvinna og öfugt (Sjá mynd af röngunni)
  3. Það getur líka komið vel út að nota sprengdan tvinna (Vængirnir á fiðrildinu)

0 Comments