Fyrir einhverju síðan, u.þ.b. ári eða meira, saumaði ég svona pennahilki/hulstur sem var hægt að festa t.d. á dagbók og fór með í vinnuna. Þar eru dagbækur á hverri deild þar sem í er skráð hvernig dagurinn á að líta út og margt fleira. Á hverjum morgni er svo stuttur fundur þar sem við deildarstjórar, aðstoðar- og leikskólastjóri sitja og skráum daginn. Þar sem fundurinn er eins stuttur og hægt er að hafa hann er ekki gott að þurfa að byrja á því að leita að pennanum sem oft vildi gerast. Þá komu pennahulstrin mín að góðum notum og penninn alltaf á sínum stað….

Verkefni dagsins í dag var að sauma nokkur stykki til að eiga á lager, enda mun ný deild opna núna í ágúst og þá þarf nýji deildarstjórinn auðvitað að fá eitt til að vera eins og við hinar.
0 Comments