Ég á afmæli í dag og auðvitað nýtti ég daginn í að gera það sem mér þykir skemmtilegt…. að sauma!
Ég byrjaði að skera og sníða í teppið gær og nú var bara að sauma þetta saman. Einhverra hluta vegna er það umtalað í bútasaumsheiminum að svona sveigjur og beigjur séu eitthvað erfiðar. Ég vissi það ekki þegar ég saumaði saman fyrsta bútasaumsverkefnið mitt, Sólskinsteppið og er því ekkert smeik við að gera þetta. Mér finnst að raunar bara skemmtilegra en að sauma beinar línur.

Stundarglasið var sem sagt saumað saman á afmælisdeginum sjálfum. Ég byrjaði reyndar á aðeins færri blokkum og ætlaði upphaflega að hafa teppið bara lítið. Það er reyndar lítið enn þá, en um þrjúleytið var ég búin að sauma allt saman og fannst það eiginlega aðeins of lítið þanning að ég sneið bara aðeins meira og bætti við. Efnið sem ég notaði í teppið eru skirtur húsbóndans og elsta sonarins og hvíta efnið er gamalt sængurveraefni. Nú er bara að finna eitthvað í border/ramma utanum.
0 Comments