Aftur upp úr skúffunni
Ég skrifaði um þetta teppi um daginn. Það fór svo ofan í skúffu á meðan hönnuðurinn og saumakonan ígrundaði næstu skref. Nú eru nokkur skref til viðbótar orðin að veruleika. Mér fannst alltaf eitthvað vanta meira í miðjuna og ákvað því að ná í gylltan þráð (þar sem að mínu mati fer vel á svartann bakgrunn) og nýta skrautsporin á vélinni minni. Ég strikaði línur til að fara eftir og þetta er útkoman.


Ég ákvað líka að bæta aðeins við og setti „border“ í sama svarta litnum og notaði svo ósýnilegt spor til að sauma það á. Þetta kemur vel út að mestu en ég er þó enn að gera það upp við mig hvort ég þurfi ekki að hafa hornin eitthvað öðruvísi. Það kemur í ljós síðar…..

0 Comments