Dagurinn í dag fór að mestu í heimiliststörf, þessi venjulegu…. Ég ræsti þó Cricut græjuna mína og lét hana skera út fyrir mig skreytingu á vatsdúnkinn minn. Ég notaði „color changing vinyl“ frá Cricut og er mjög ánægð með útkomuna.
Í gær setti ég líka hveiti, ger og vatn í skál og setti inn í tækjaskáp…. Planið var nefnilega að gera Bloomer brauð. Ég játa það hér og nú að ég var næstum því búin að gleima blöndunni inni í skáp en jemundur minn hvað útkoman var dásamleg! Þetta brauð verður sko bakað aftur….
Fyrir forvitna þá er uppskriftin á Youtube – How to Bake The Iconic British Bloomer at Home


0 Comments