Taska fyrir litlu Cricut

15. júlí, 2024
Vefrún bloggar

Ég hef verið á fullu að æfa mig í Free motion Quilting upp á síðkastið og því sett saman efnisbúta sem líkjast því þegar quilt teppi eru quiltuð.  Auðvitað eru þessi tilraunastykki tilvalin í einhverskonar handavinnustykki.  Þessi taska er einmitt afurð af einni slíkri.  Ég ákvað sem sagt að búa til tösku fyrir litlu Cricut mini hitapressuna mína. Þetta er ekki fullkomnasta verkið en dugar bara nokkuð vel fyrir þetta hlutverk.

0 Comments