Kassa-skirtu teppið

12. júlí, 2024
Vefrún bloggar

Hugmyndin að þessu teppi varð til eftir að ég fjárfesti í Stripology stiku, en slíkar stikur gera það svo auðvelt að skera margar ræmur í einu eða ánþess að þurfa endalaust að vera að færa reglustikuna til endalaust. Það er einmitt þá sem að hættan er að allt fari af stað og efnið fari í einhverja klessu, a.m.k. þegar ég á í hlut.

Dekkra efnið í toppnum á teppinu er skorið úr skirtum af eiginmanninum sem hann er hættur að nota (Lesist: orðnar of litlar).  Hvíta efnið er hinsvegar afgangur af gömlu efni sem ég er búin að eiga í mjög mörg ár.  Bakið og ramminn er svo nýkeypt lök úr Jysk og millilagið er polyester filling sem var upphaflega ætluð í annað (sem aldrei varð).  Þetta er algert æfninga- og tilraunastykki.    Quilt vinnan er blanda af  venjulegum beinum saumsporum, free-motion.  Planið er svo að nota reglustiku aðferðina á yrsta ramman en hönnun á mynstrinu er enn í vinnslu.

0 Comments