#3 Skirtuteppið



Einhverntíma fyrir langalöngu tók ég nokkrar gamlar skirtur af elsta syninum, og e.t.v. eiginmanninum líka, og klippti þær í sundur í efnivið í saumaskapinn. Ég saumaði eitthvað úr hluta af þeim en nýtti kannski tölurnar meira í tölur á fötin á prjónadúkkunum mínum.

Hluti af þessu voru allskonar, misstórir bútar sem ég tímdi samt ekki að henda, þannig að ég fór á YouTube til að fá hugmyndir um hvað ég gæti gert úr þessu. Þar fann ég m.a. myndband frá konu sem ég hef fylgst þónokkuð með síðan um hvernighún saumar alla smábúta (minnst 2-2,5 tomma) á pappírsstrimla og nýtir þá svo í „crumb-blokkir“ eða einhver önnur verkefni. Ég saumaði þá skirtubútana á pappírsræmur, notaði bara venjulegan prenntarapappír eða öllu heldur pappír sem ég hafði prenntað einhverja fræðigreinar á til að auðvelda lestur fyrir eitthvert skólaverkefnið. Ég geri svo ekkert meira á þeim tíma svo þetta lá bara ofaní skúffu. Þegar ég svo flutti saumaherbergið mitt upp á efrihæðina fann ég þetta ofan í einhverjum kassanum og ákvað að gera tilraun með ræmurnar.
Ég saumaði þær einfaldlega bara saman í ferhyrndar blokkir og setti svartan ramma utanum. Í millitíðinni datt ég niður á snilldar forrit sem ég hef verið að leika mér í og prófa. Forritið heitir EQ8 og er forrit til að hanna bútasaumsteppi. Uppröðunin á blokkunum er einmitt afraksturinn af fikti með forritinu góða. Ég er enn að læra á það en þetta er svo mikil snilld að þegar prufutíminn var liðinn ákvað ég að kaupa það og sé ekki eftir því enn að minnsta kosti
0 Comments