Þetta teppi er búið að vera nokkurn tíma í vinnslu en aðallega vagna þess að ég hef verið svo óákveðin með hönnunina á því. Ég raðaði blokkunum saman í allskonar mynstur en endaði á að sauma þær saman eins og sést á mynd tvö.
Enn sem komið er bíður það svo eftir að verða klárað (border/bak/quilt) en ég hef jafnvel verið að spá í að nýta einhvert af skrautsporunum á saumavélinni minni til að skreyta það aðeins þar sem mér finnst að stundum vanta eitthvað meira.
0 Comments