
Teppi klárað – 18. júní
Eitt af þessum teppum er í barnastærð (kannski aðeins stærra en það þó) en það er teppið sem ég hef klárað alveg. Ég var því miður ekki dugleg að taka myndir í ferlinu en hér er mynd af því fullkláruðu. Það er ekki fullkomið! …. en ég er bara mjög ánægð með útkomuna engu að síður. Efnið sem ég notaði er blanda af einhverju sem ég átti til og hef átt lengi, tiltölulega nýjum efnum og lökum, sem annarsvegar voru keypt sérsaklega í saumaskapinn og hins vegar eitthvað sem ég átti inni í skáp en gat ekki lengur notað á rúm fjölskyldumeðlima.
„Quilt“ saumurinn er bara saumaður í saumavélinni minni. Ég fann mynstur á Pinterest sem ég stækkaði í passlega stærð í Photoshop og prenntaði síðan út. Ég notaði síðan fatakrít til að strika mynstrið á teppið og saumaði ofaní strikin. Á því eru líka tvær applikeraðar stúlkur sem gerir teppið svoldið krúttlegt í mínum augum.
0 Comments