Það helsta sem ég hef verið að dútla við eru pappírsverkefni með Cricut vélinni. Þar er helst að nefna blóm sem eru skorin út með vélinni og svo er þessu rúllað upp og límd saman. Komst að því að það er betra að nota ekki þykkan card stock og ekki of þunnan. Ég á nú ekki mikinn lager að pappír en gat fundið þetta út með þí að prófa mig áfam.
Á föstudagskvöldið var sett í pöntun af Amazon, svartur og hvítur vínill (HTVRONT) og transfertape. Það verður gott að fá þessa liti til viðbótar þeim sem fylgdu vélinni. Annars var ég að prófa mig áfram með skurði á vínil í gær og skar m.a. út afskaplega krúttleg letidýr sem fengu stað á veggnum yfir skrifborðinu mínu.
0 Comments