Fyrirtækið og fólkið
Um Vefrúnu
Hver erum við?
Vefrún – á vefnum síðan 2000
Vefrun.is varð til þann 30. ágúst 2000 og er það því opinber fæðingardagur Vefrúnar. Þá var aðalhlutverkið að hanna og setja upp vefi af ýmsum stærðum og gerðum, auk annarskonar smáverkefna m.a. að skanna inn gamlar ljósmyndir eða útbúa auglýsingar, bæklinga og margt fleira.
Nú er Vefrún á tímamótum og gengur í gegnum breytingar. Vefrún varð einkahlutafélag í júlí 2025 og mun megin starfssemi tengjast smásölurekstri. Við opnuðum verslun að Akurgerði 12 í Vogum í janúar 2026, auk þess sem hægt er að kaupa vörur okkar í vefverslun.
Við erum í óða önn að bæta við vörum í vefversluninna, en þar má nú finna úrval handunninna muna sem eru m.a. ýmist prjónaðir, heklaðir eða saumaðir, auk vefnaðarvöru og annars sem til þarf í bútasaum.
Afgreiðslutíma má sjá á forsíðu.
Vefrún ehf
Akurgerði 12
190 Vogum
Tölvupóstur
vefrun@vefrun.is
Sími
Sigrún: 8640915
Hjörtur: 8646515
Væntanlegt – Vörur fyrir bútasauminn
Framtíðarplön – Vörur fyrir bútasaum, metravara, feitir fjórðunar, sulturúllur, stikur, snið og margt fleira….
Vörur frá ýmsum þekktum hönnuðum og framleiðendum…..
Helstu vörumerki og framleiðendur
Námskeið og viðburðir
Stefnan er að Vefrún standi fyrir námskeiðum af ýmsu tagi í náinni framtíð. Þá er einnig á áætlun að skipuleggja hittinga, þar sem fólk með sameiginleg áhugamál, tengdum hannyrðum og föndri fær tækifæri til að koma saman og sinna sínu, læra af öðrum eða spjalla.
Sjálf höfum við margar hugmyndir að spennandi námskeiðum og hittingum en við viljum líka heyra frá þér ef þú hefur einhverjar sérstakar óskir. Svo er aldrei að vita að ef margir óska eftir því sama margfaldar það möguleikana á þitt draumanámskeið eða hittingur verði að veruleika.













































