Blockheads 6 – Framhald

6. nóvember, 2025
Vefrún bloggar

Ég skrifaði færslu um ModaBlock heads í ágúst.  Nú fer að líða að því að síðustu blokkirnar komi fram,  en ég hef verið að sauma þær saman samviskusamlega síðan í maí.  Hvern miðvikudag kemur ný blokk og á endanum munu þær mynda teppi.  

Nýjasta blokkin er 18″ en það eru fjórar slíkar í verkefninu. Tvær eru þegar komnar, þrjár með þessari, og ein á eftir að koma. 

Það eiga að vera einhverjar tengiblokkir, blokkir sem eru ætlaðir sem fylling eða tenging á milli hinna.  Mig minnir að sú blokk hafi verið blokk #17.  Hún er eina blokkin sem ég hef ekki saumað ennþá af þeim sem eru komnar en ég ákvað að geyma hana þar sem hún er með svo stóran hluta af bakgrunnsefninu og ég er ekki alveg viss um að það dugi í það sem er eftir.   Það kemur bara í ljós.  

Ég raðaði saman blokkunum sem ég hef saumað. Þetta er ekki endanlegt útlit samt en gaman að sjá hvernig blokkirnar koma út svona hlið við hlið. 

0 Comments