Lítil sæt skrímsli
Ég byrjaði á þessu teppi í maí síðastliðum, eða þ.e.a.s. á einni blokk. Ég var samt búin að prennta út myndir af skrímslum sem ætlunin var að nota.

Það var svo komin júní þegar ég var búin að setja öll skrímslin á bakgrunnin.

Smátt og smátt vann ég svo í að sauma skrímslin á bakgrunnin, ýmist með satín saum eða ýmsum mismunandi skrautsporum sem saumavélin mín bípur upp á.
Þá var komið að því að ákveða hvernig ég myndi setja blokkirnar saman svo úr yrði toppur í teppi. Ég vellti þessu fyrir mér og á meðan biðu skrímslin sallaróleg ofaní skúffu.
Samsettningin kom svo bara einhvernvegin sjálfkrafa. Ég hafði ákveðið að raða blokkunum ekki í beina línur og setja „random“ búta eða blokkir á milli þeirra.

Ég er þokkalega ánægð með útkomuna. Núna á aftir að bæta bið „borderi“ og svo, þegar ákvörðun hefur verið tekin um bak, að stinga teppið og setja á það bindinguna.
0 Comments