Moda Block Heads 6
Úti í hinni stóru Ameríku eru margir snillingar í bútasaumi. Þar eru líka risastórir framleiðendur, verslunarkeðjur og fyrirtæki sem tengjast bútasaumi. Eitt af þessum stóru er Modafabrics. Þeir framleiða og dreyfa, eigin línum í efnum, hafa fjöldan allan af hönnuðum á sínum snærum.
Modafabrics standa líka fyrir allskonar "sew along" eða samsaumi, þar sem fólk getur fundið allskonar verkefni. Eitt af því sem nú er í gangi er eitthvað sem þeir kalla Blockheads og er það í 6. sinn sem þeir bjóða upp á það.

Ég sá þetta fyrir rælni í einhverri af þeim mörgu bútasaums grúppum sem ég er meðlimur í á Facebook og ákvað að taka þátt. Í dag þegar þetta er skrifað eru komar 11 blokkir en í hverri viku kemur eitt snið af blokk. Það er ekki búið að gefa út neitt um það hvernig á að raða þessu saman en það er í raun ekki aðalatriðið. Það má náttúrulega bara raða þessu saman eins og manni sýnist.
Mínar "BlockHead6" blokkir
Til gamans langar mig til að deila með ykkur það sem ég er búin að gera í þessu verkefni en ég hef verið að sauma þetta í törnum, þ.e.a.s. ekkert endilega eina blokk á viku. Stundum sleppi ég viku, sérsaklega þar sem ég er með önnur verkefni í gangi líka, og geri svo bara tvær eða jafnvel þrjár þegar ég er í stuði.











0 Comments