Námskeið og viðburðir
Aldrei of seint að læra eitthvað nýtt
Ekkert í boði sem stendur en væntalegt
Enn sem komið er eru engir skipulagðir viðburðir í boði. Þeir munu birtast hér þegar fram líða stundir. Vertu viðbúin(n) og skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu tilkynningu í tölvupósti þegar þar að kemur
Námskeið og viðburðir
Framtíðaráform Vefrúnar ehf.
Stefnan er að Vefrún standi fyrir námskeiðum af ýmsu tagi í náinni framtíð. Þá er einnig á áætlun að skipuleggja hittinga, þar sem fólk með sameiginleg áhugamál, tengdum hannyrðum og föndri fær tækifæri til að koma saman og sinna sínu, læra af öðrum eða spjalla.
Sjálf höfum við margar hugmyndir að spennandi námskeiðum og hittingum en við viljum líka heyra frá þér ef þú hefur einhverjar sérstakar óskir. Svo er aldrei að vita að ef margir óska eftir því sama margfaldar það möguleikana á þitt draumanámskeið eða hittingur verði að veruleika.
Halló!
Dæmi um möguleg námskeið og viðburði
Athugið að þessi listi er aðeins hugmyndabanki og til að fá grófa mynd af því sem mögulega gæti tengst starfsemi Vefrúnar ehf. Við fögnum fyrirspurnum og tillögum frá öllum.
Lærðu að prjóna
Lærðu að hekla
Amigurumi námskeið
Sjálfstraust á saumavélina
Prjónahittingur
Saumahittingur
Bútasaumshittingur
░ ░ ░ ░