Hunny Bunny

24. maí, 2025
Vefrún bloggar

Kanínur og gulrætur

Þetta er verkefni sem ég er búin að vera með í maganum síðan í vetur. Ég var á einhverju flandri um Pinterest og sá mynd af þessu teppi. Þetta er ekki eitthvað sem maður saumar á nokkrum dögum, það er alveg ljóst, en það er allt í lagi því þetta er svo skemmtilegt.

Ég náði að koma einni blokk saman og sú næsta beið ósamsett á verkefnatöflunni til betri tíma.  Planið var samt að klára að gera bróderinguna á blokk eitt fyrst og sauma satínspor á applikeringuna. Eftir að hafa bróderað fyrstu blokkina ákvað ég að bródera allar myndablokkirnar áður en þær yrðu saumaðar saman.

Fyrir áhugasama þá er uppskriftin af teppinu fengin frá Megs and Me og heitir Hunny Bunny. Það eru mjög mörg dásamlega falleg verkefni á síðunni þeirra .

 

0 Comments