Brauð og Cricut verkefni

18. júlí, 2024
Vefrún bloggar

Dagurinn í dag fór að mestu í heimiliststörf, þessi venjulegu…. Ég ræsti þó Cricut græjuna mína og lét hana skera út fyrir mig skreytingu á vatsdúnkinn minn. Ég notaði „color changing vinyl“ frá Cricut og er mjög ánægð með útkomuna.

 

 

Í gær setti ég líka hveiti, ger og vatn í skál og setti inn í tækjaskáp…. Planið var nefnilega að gera Bloomer brauð. Ég játa það hér og nú að ég var næstum því búin að gleima blöndunni inni í skáp en jemundur minn hvað útkoman var dásamleg!  Þetta brauð verður sko bakað aftur….

Fyrir forvitna þá er uppskriftin á Youtube  –  How to Bake The Iconic British Bloomer at Home

0 Comments