Eins og svo oft áður var ég að vafra á YouTube og lennti á myndbandi frá konu sem var að nota saumavélina sína í að búa til myndir með tvinna. Auðvitað varð ég að prófa mig áfram í því. Ég nýtti afganga og klippti út blóm, blómið úr gulu efni og laufblöð og stöngul úr grænu efni…. Ég notaði eitthvað sem heitir heat n´ seal sem er með lími báðumegin og festi blómhlutana á bakgrunninn. Ég notaði útsaumstvinna sem þráð, en það má nota hvaða tvinna sem er (nema lélegan sem slitnar). Ég notaði bara þennan tvinna afþví að þeir voru að „réttum lit“. Ég notaði nýja fótinn minn „Opentoe sensormatic free-motion“ og byrjaði. Þetta er einmitt ágætisleið til að æfa sig í að nota free-motion fæturnar og að fá tilfinninguna fyrir notkuninni s.s. hversu hratt maður þarf að hreyfa efnið undir til að fá rétta sporlengd miðað við hraðan á saumavélinni og allt það.

Ég á enn aftir að fylla betur í með gula litnum á blóminu og e.t.v. gera eitthvað meira með þetta. Þá ætla ég líka að nota þessa aðferð á einhvern hluta á landslagsmynd sem varð óvart til í síðustu viku.

0 Comments