Hugmyndin að þessu teppi varð til eftir að ég fjárfesti í Stripology stiku, en slíkar stikur gera það svo auðvelt að skera margar ræmur í einu eða ánþess að þurfa endalaust að vera að færa reglustikuna til endalaust. Það er einmitt þá sem að hættan er að allt fari af stað og efnið fari í einhverja klessu, a.m.k. þegar ég á í hlut.
Dekkra efnið í toppnum á teppinu er skorið úr skirtum af eiginmanninum sem hann er hættur að nota (Lesist: orðnar of litlar). Hvíta efnið er hinsvegar afgangur af gömlu efni sem ég er búin að eiga í mjög mörg ár. Bakið og ramminn er svo nýkeypt lök úr Jysk og millilagið er polyester filling sem var upphaflega ætluð í annað (sem aldrei varð). Þetta er algert æfninga- og tilraunastykki. Quilt vinnan er blanda af venjulegum beinum saumsporum, free-motion. Planið er svo að nota reglustiku aðferðina á yrsta ramman en hönnun á mynstrinu er enn í vinnslu.












0 Comments